Friday, December 7, 2007

En tíminn líður ekki!

Og aldrei koma jóólin! Eins og sungið var hér forðum. Hér líður tíminn samt alveg eðlilega fyrir sig. Smám saman pjakkast aðstaðan í kjallaranum og stefnt að því að setja eitthvert gólfefni til bráðabirgða svo það verði nothæft.

Íslandsjólapakkarnir fóru í póstinn í fyrradag ásamt umsókn um sérfræðingsleyfi svo nú veður á súðum hjá útlegðarfjölskyldunni! Í gær var líka haldin aðventuhátíð bæði hjá Írisi í leikskólanum og hjá Ara í skólanum. Og eins og vant er gleymdist myndavélin heima. Þið verðið bara að ímynda ykkur hvernig þetta var.

Já!... Fuglarnir og sólin?...

1 comment:

Lára said...

Hæ sæti!
Hvernig væri nú að finna myndavélina og setja inn nokkrar myndir af gríslingunum þínum?