Wednesday, February 7, 2007

Er þetta kúkur?

Hér heldur helvítis pestin áfram, slappur eins og tuska og fullur sjálfsaumkunar. Og það sem verra er, þetta sést varla á blóðprufu og ekkert á röntgen svo ég hef ekki haldmiklar sönnur á veikindunum, þrátt fyrir nokkuð einarða leit. En markið er ennþá sett hátt, þótt ég rifi aðeins seglin og segi: "Ég er 1/2 marathon joggari, ég ætla að jogga 1/2 marathonið"!

Skráið ykkur inn seinna þegar ég lækka enn kröfurnar og segi:" Ég er skemmtiskokkari, ég ætla að hlaupa skemmtiskokkið"!

2 comments:

brynjalilla said...

vildi ég væri í svo góðu formi að ég treysti mér í hálfmaraþon, hlakka til þegar fer að vora og ég byrja hlaupin mín, læt mér nægja innipúkaæfingar á stígvélum en hjóla þó vítt og breitt þess á milli!

Magnús said...

Spurningunni er þó enn ósvarað.