Wednesday, March 14, 2007

Vorrigningar

Engin steypidemba heldur meira svona dropar á stangli. Stutt hlaup í léttu rigningardrussi og gjólu en annars afar góðu veðri. Jafnt hlaup og hraðinn smám saman að aukast samhliða úthaldinu.

Fórum í bæinn í dag eftir vaktina mína sem var afar tíðindalítil, vaknaði úthvíldur kl. 6 í morgun og gat ekki sofið lengur! Reyndi að finna afmælisgjöf fyrir Þóru sem á afmæli á morgun en náði ekki alveg fullri lendingu með það.

Fengum SMS frá Tinnu í dag frá Bergen, semsé í seilingar fjarlægð. Alveg agalegt að geta ekki hitt hana en það verður bætt úr því í sumar, heldur nú betur og jamm og já!

1 comment:

Lára said...

Þú verður nú að finna e-ð fallegt handa konunni þinni. Hún er baka köku og á það svoo skilið!!